Hvernig veljum við?

VAL | Vísindarannsókn Háskóla Íslands á ákvarðanatöku í daglegu lífi

Fimm epli í röð, eitt þeirra grænt
Fjögur epli í röð, eitt þeirra grænt

Get ég tekið þátt?

Þú getur tekið þátt ef þú ert 18–66 ára, ert með rafræn skilríki og býrð eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Það skiptir ekki máli hvar lögheimili þitt er skráð.

Af hverju ætti ég að taka þátt?

  • Þú leggur þitt af mörkum til vísindarannsókna Háskóla Íslands sem auka þekkingu á mannlegri hegðun.
  • Þú getur valið að fá persónulega endurgjöf um eigin hegðun. Hún berst eftir að allri rannsókninni lýkur.
  • Þér kann að standa til boða tímabilskort á afslætti: strætókort hjá Strætó, líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness, Menningarkort eða sundkort hjá Reykjavíkurborg. Kortið er keypt í viðmóti rannsóknarinnar með greiðslukorti.
  • Sumir þátttakendur fá beinar peningagreiðslur, sem leggjast inn á íslenskan bankareikning.

Hvernig tek ég þátt?

  • Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
  • Þátttaka getur tekið allt að 45 mínútum.
  • Þú hefur 24 klukkustundir til að ljúka þátttöku.
  • Þú getur lokað viðmótinu og haldið áfram síðar hvenær sem er innan þess tíma.

Fylgstu með rannsókninni VAL á samfélagsmiðlum!